Riyad Mahrez hefur lagt landsliðsskóna á hilluna eftir að Alsír féll úr leik á HM.Mahrez greindi frá ákvörðun sinni í viðtali við eftir 2-0 tap Alsírs gegn Sviss í 32-liða úrslitum í nótt.Þessi 35 ára gamli kantmaður lék 119 landsleiki á tólf ára landsliðsferli, skoraði 40 mörk og var lykilmaður þegar Alsír varð Afríkumeistari árið 2019.Mahrez leikur í dag með Al-Ahli í Sádi-Arabíu en varð fyrr á ferlinum fimm sinnum enskur meistari með Manchester City og Leicester.