Rífa á stóran hluta stúkunnar í Laugardal

Til stendur að rífa stóran hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug í Reykjavík. Stúkan hefur verið eitt helsta kennileiti Laugardals síðan 1968. Í nýju áhættumati Verkís er mesta og bráðasta hættan að steypubrot gætu fallið á gesti eða starfsfólk og mögulegt burðarþolshrun, sérstaklega ef súlur gefa sig undan eigin þunga. Svæði næst stúkunni var lokað í dag og girt af.Til stendur að rífa skyggni og áhorfendapalla svo eftir standi gufubað og aðstaða starfsfólks undir stúkunni sjálfri. Afgirt svæði verða ekki opnuð aftur í sumar. Stúkan verður svo mögulega öll rifin þegar fram líða stundir.Margir sundlaugargestir harma niðurrifið og kalla eftir því að stúkan verði endurbyggð, en öðrum finnst ekki mikill missir af henni ef eitthvað annað kemur í staðinn, til dæmis stækkun sundlaugarinnar.
Rífa á stóran hluta stúkunnar í Laugardal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd