Emam Ashour kom Egyptum yfir á þrettándu mínútu en Ástralía jafnaði með sjálfsmarki snemma í seinni hálfleik. Egyptar áttu svo mun betri færi og sóttu meira það sem eftir lifði leiks og í framlengingunni en allt kom fyrir ekki og staðan var því enn 1-1 eftir 120 mínútna leik.Þá tók við vítaspyrnukeppni. Egyptar skoruðu úr öllum fjórum spyrnum sínum á meðan Ástralía skaut yfir úr tveimur spyrnum. Egyptaland vann því og er komið í 16-liða úrslit og mætir þar annað hvort Argentínu eða Grænhöfðaeyjum.