Jafnt hjá FH og Stjörnunni

FH og Stjarnan skildu jöfn, 2-2 í eina leik kvöldsins í Bestu deild karla í fótbolta. Adolf Daði Birgisson kom FH-ingum yfir í 1-0 með marki á 10. mínútu en Stjarnan komst í 2-1 með mörkum Sindra Þórs Ingimarssonar og Örvars Eggertssonar.Áður en fyrri hálfleikur var á enda hafði þó Ísak Óli Ólafsson jafnað fyrir FH á ný í 2-2 og þar við sat. Niðurstaðan varð jafntefli.FH er í 11. sæti með átta stig en Stjarnan er í 6. sæti deildarinnar og hefur þar 15 stig. FH hefur þó leikið einum leik færra en Stjörnumenn.
Jafnt hjá FH og Stjörnunni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd