Einn var handtekinn í tengslum við það þegar lögregla lagði hald á tæplega 200 kannabisplöntur í Reykholti í Bláskógabyggð um helgina.„Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. Málið er í hefðbundnu ferli og rannsókn,“ segir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Hann vill ekki gefa upp kyn þess sem handtekinn var. Þá vill hann heldur ekki gefa upp fjölda sakborninga í málinu.Lögregla lagði auk kannabisplantnanna hald á búnað til ræktunar og önnur meint fíkniefni en ræktunin er með þeim umfangsmestu á Suðurlandi síðustu ár.Samkvæmt heimildum fréttastofu grunar lögreglu að þeir sem stóðu að baki kannabisræktuninni hafi einnig staðið að tveimur öðrum slíkum ræktunum sem voru stöðvaðar á suðvesturhorninu nýlega. Talið er að málin tengist skipulagðri brotastarfsemi.