Félagarnir Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson ætla að synda frá Vestmannaeyjum að Suðurströnd Íslands í styrktarsundi til minningar um Bríeti Irmu, sem lést í ágúst í fyrra. Með sundinu safna þeir fé fyrir fjögurra ára dóttur hennar, Atalíu Örk.