Fram kom í fréttum í gær að lokaeinkunnir í stærðfræði og íslensku eru jafnan mun hærri í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. „Þeir þættir sem hafa mest áhrif hafa á námsárangur er félagslegur bakgrunnur og auðvitað bara skólasókn,“ segir Magnús Þór. „Mögulega þurfum við að horfa til þess líka hvernig okkur gengur að manna skólana okkar fagfólki.“Hann bendir á að hlutfall fagmenntaðra kennara utan höfuðborgarsvæðisins og ákveðinna þéttbýliskjarna hefur í gegnum söguna verið minna.En segir þetta eitthvað um gæði námsins eða er þetta merki um einkunna verðbólgu á höfuðborgarsvæðinu? „Ég held að það sé alls ekki þannig,“ segir Magnús Þór. „Matsviðmiðin snúast um það að börnin og nemendurnir okkar fái rétta mynd og kennararnir sem meta þau eru þeir sem hitta þau alla daga og bera hag þeirra mest