Hundar rifu höfuðleðrið af sjö ára stúlku

Sjö ára stúlka í Kaliforníu á fyrir höndum langan veg til bata eftir að hundar réðust á hana og rifu af henni höfuðleðrið.Á söfnunarsíðunni GoFundMe er greint frá árásinni og söfnun fyrir fjölskylduna. En stúlkan, sem heitir Patricia, varð fyrir árás þann 27. júní í bænum Corning, norðan við borgina Sacramento í norðurhluta Kaliforníu.Nokkrir hundar réðust að barninu í einu með hræðilegum afleiðingum. Höfuðleðrið rifnaði af henni og hún fékk einnig alvarlega áverka á fótleggjum. Var hún fyrst á sjúkrahús í nágrenninu en síðan flutt með sjúkraflugi á stærri spítala.
Hundar rifu höfuðleðrið af sjö ára stúlku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd