Dauðsföllum fjölgaði um nær 40% í hitabylgju

Dauðsföllum í Frakklandi og Belgíu fjölgaði mikið í hitabylgju á dögunum. Varað er við hita í Portúgal og gróðureldar geisa í Frakklandi.Í hitabylgju í Frakklandi í lok síðasta mánaðar hækkaði dánartíðni í landinu um 29 prósent. Í vikunni sem bylgjan geisaði létust 2.025 fleiri en í vikunni á undan. Í París og nágrenni voru dauðsföllin 62 prósentum fleiri á þessum tíma. Heilbrigðisráðuneyti landsins telur þetta þó mögulega vera vanmat.Skráð dauðsföll í Belgíu voru 39 prósentum fleiri en vanalega á tímabilinu 18. til 29. júní. Nærri helmingur þeirra sem létust var 85 ára eða eldri. Fram kemur í yfirlýsingu frá heilbrigðisráðuneyti Belgíu að svo mikil aukning dauðsfalla sé án fordæma í landinu.Dauðsföllum í Belgíu fjölgaði um 39 prósent í hitabylgju á dögunum. Dauðsföllin í Frakklandi voru r
Dauðsföllum fjölgaði um nær 40% í hitabylgju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd