Á grundvelli upplýsingalaga er Matvælastofnun skylt að afhenda eftirlitsskýrslur sínar með veiðum Hvals hf. á langreyðum. Eftir að stofnuninni bárust ábendingar um að þær fælu í sér nákvæm hnit veiðanna í morgun breytti MAST verklagi sínu.„Við brugðumst strax við og höfum breytt verklagi þannig að nákvæm staðsetning langreyðanna er ekki lengur skráð í okkar eftirliti,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST. SEGIR ÖRYGGI SJÓMANNA ÓGNAÐ Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., skrifaði í pósti til Hrannar sem sendur var á fjölmiðla í dag að Hvalur hefði rökstuddan grun um að upplýsingar um staðsetningu veiðanna hefðu borist Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna.„Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf,“ skrifaði hann og sagði fyrirtækið hafa s