Wayne Rooney hefur enga trú á að Noregur slái Brasilíu úr leik á HM á sunnudag. Hefur hann gefið stórt loforð ef ske kynni að það gerist.Noregur og Brasilía mætast í 16-liða úrslitunum á sunnudagskvöld en Rooney telur að móti Erling Braut Haaland og félaga ljúki þar.„Ef Noregur kemst í 8-liða úrslit mun ég róa niður Mersey-ána,“ sagði Rooney léttur á BBC, en áin er á norðvestur-Englandi.Þess má þó geta að Noregur hefur aldrei tapað fyrir Brasilíu. Norðmenn unnu eina keppnisleik þjóðanna, 2-1 á HM árið 1998, auk þess að vinna vináttulandsleik 4-2 árið 1997.