Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mannréttindi enn í hávegum höfð í borginni þrátt fyrir að mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð hafi verið lögð niður í síðustu viku.Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýndu í gær breytingar á ráðum borgarinnar á fundi borgarráðs og sökuðu nýjan meirihluta um blekkingar og sýndarhagræðingu.Fulltrúar Samfylkingarinnar segja kostnað við stofnun öldungarráðs vera þann sama og við mannréttindaráð, en sinna færri verkefnum.Bókunin var svohljóðandi: > Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á tillögu meirihluta borgarráðs um stofnun nýs ráðs, öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks í stað mannréttindaráðs sem fór með þau verkefni sem nýju ráði er ætlað að sinna. Kostnaður við nýtt ráð er nákvæmlega sá sami og kostnaður var við mannréttindaráð,