Norðmaðurinn Erik Tobias Sandberg, varnarmaður ÍA, fylgist náið með norska landsliðinu sem er að gera góða hluti á heimsmeistaramótinu um þessar mundir. Liðið vann Fílabeinsströndina í 32-liða úrslitum í vikunni og mætir Brasilíu í 16-liða úrslitum á sunnudag. Erik var lengi vel í yngri landsliðum Noregs og þar var hann mikið með Erling Haaland. Fótbolti.net ræddi við hann um Noreg á HM og vináttu hans og Haaland.