Hvalur segir veiðar standast lög

Veiðar á langreyðum síðustu daga hafa verið í samræmi við reglugerð um þær. Þetta segir í tilkynningu frá Hval hf. sem Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, sendi frá sér í dag. Á þriðjudag var greint frá því að Matvælastofnun hefði til rannsóknar dráp á langreyði 22. júní.Langreyðurin var skotin með fjórum sprengiskutlum og 31 mínúta leið frá því hún var fyrst skotin þangað til hún drapst.Í tilkynningu Hvals segir að á yfirstandandi vertíð hafi 10 langreyðar verið skotnar. Í öllum tilvikum hafi aðalskot og umskot hægt skilgreint marksvæði í samræmi við reglugerð nr. 895/2023. Reglugerðin kveður t.d. á um marksvæði, skotvinkil og endurskot.„Samkvæmt því sem fram hefur komið í fjölmiðlum hefur MAST til rannsóknar tilvik þegar skjóta þurfti langreyð fjórum skotum. Í þessu samhengi hefur jafnfr
Hvalur segir veiðar standast lög

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd