Átta Túnisar féllu á lyfjaprófi en hljóta ekki refsingu

Efni á bannlista fundust í sýnum átta leikmanna landsliðs Túnis á HM. Ástæðuna má rekja til mengunar í kjöti sem leikmennirnir borðuðu í herbúðum liðsins í Mexíkó. Klenbúteról fannst í sýnunum, lyf sem slakar á öndunarvegum. Efnið hefur verið notað af líkamsræktarfólki til að losna við fitu en halda um leið í vöðvamassa. Í sumum löndum, þar á meðal Mexíkó, er það notað sem vaxtarhvati fyrir nautgripi. Lyfjaeftirlit HM hefur látið félagslið umræddra leikmanna vita en talið er að þeir hljóti enga refsingu.
Átta Túnisar féllu á lyfjaprófi en hljóta ekki refsingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd