Kristján Loftsson, forstjóri og eigandi Hvals hf., óskar eftir því að Matvælastofnun upplýsi um það hverjum hún hafi afhent eftirlitsskýrslur sínar úr skipum fyrirtækisins.„Á eftirlitsskýrslunum getur að líta, eins og þér er fullkunnugt, nákvæma staðsetningu (hnit) veiddra langreyða. Út frá því er hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals hf. halda sig við veiðar,“ skrifar Kristján í tölvupósti til Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra MAST.Pósturinn var einnig sendur á fjölmiðla.Kristján segir að Hvalur hf. hafi rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipinu Bandero. „Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf,“ skrifar hann. STEFNDU SKIPUM ANNAÐ Fyrirtækið hefði krafist þess að upplýsingar yrðu afmáðar „í ljósi yfirlýsinga skipverja á