Fjarlægja þurfti tvo bíla af Reykjanesbraut um klukkan fjögur síðdegis eftir þriggja bíla árekstur. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að engin slys hafi orðið á fólki en að fjarlægja þurfti tvo bíla af þremur með kranabíl.