Á miðnætti á sunnudagskvöld (aðfaranótt mánudags) mætast Mexíkó og England í 16-liða úrslitum HM. Brad Friedel, fyrrum landsliðsmaður Englands, segir að enska liðið hafi ekkert að óttast í komandi viðureign. Leikurinn fer fram á Azteca vellinum goðsagnakennda í Mexíkó og mikið hefur verið gert úr því í fjölmiðlum hversu gott sigurhlutfall mexíkóska liðsins er. En það ber líka að horfa til þess hversu mörgum slökum liðum það hefur mætt þar. „Mexíkó er svo mikið miðlungslið. Þeir eru vanir því að spila hátt yfir sjávarmáli og virka þá hraðari en aðrir. En þeir eru miðlungslið, eða í rauninni undir meðallagi," segir Friedel. „England má bara ekki fá á sig fyrsta markið. Þá reyna þeir að kæfa þig. Aðstæðurnar eru erfiðar, hæðin er erfið og hitastigið líka. En England er bara svo miklu betra li