Langar þig að búa þar sem kyrrðin og róin eiga heima? Í fallegri sveit í skemmtilegu samfélagi og kenna í litlum sveitaskóla? Með þessum orðum hefst auglýsing á stöðu kennara við Finnbogastaðaskóla í Nátthaganesi í Trékyllisvík.Skólinn er í Árneshreppi á Ströndum, á norðanverðum Vestfjörðum, sem er næstminnsta sveitarfélag landsins í íbúum talið samkvæmt Hagstofu Íslands. Þar búa 60 manns, þar af þrjú börn – tíu, ellefu og tólf ára.„Finnbogastaðaskóli er lítill og krúttlegur skóli með mikla sögu. Síðastliðinn vetur vorum við með tvö börn í skólanum og nú er að bætast í hópinn þannig þau verða alveg þrjú, 50% aukning milli ára á börnum, og okkur vantar einhvern frábæran kennara til þess að kenna þessum börnum,“ segir Sigrún Sverrisdóttir oddviti Árneshrepps.Á vef Hagstofu Íslands er að finn