Vesturbæjarlaug opnar á ný

Vesturbæjarlaug var opnuð klukkan 15 síðdegis. Hún hafði verið lokuð frá 23. júní vegna viðhalds.„Viðhaldsframkvæmdir hafa gengið vel. Opnun laugarinnar var þó frestað um nokkra daga til að tryggja að málning á barnalauginni hefði náð fullnægjandi þurrki áður en vatni var hleypt á hana,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.Aðallaugin er full en hefur enn ekki náð fullum hita. Gert er ráð fyrir að hún verði komin í hefðbundið hitastig á morgun.„Við opnun laugarinnar í dag verða því barnalaug, heitir pottar, kaldi potturinn, eimbað og sánur öll opin gestum. Aðallaugin verður einnig opin en ekki í réttu hitastigi.“Aðallaugin er sögð ná fullu hitastigi á morgun.RÚV / Ragnar Visage
Vesturbæjarlaug opnar á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd