Vestmannaeyingar halda flesta helgarviðburði allra bæjarfélaga á landinu á sumrin. Fótboltamót, Lundahlaup, Goslokahátíð og Þjóðhátíð laða að þúsundir gesta ár hvert. Mikið hökt hefur verið á samgöngum til og frá Eyjum síðan í vetur. Herjólfur bilaði og líka Baldur og dýpkun Landeyjahafnar hefur haft áhrif en þeirra virðist ekki gæta yfir sumartímann.„Veturinn var náttúrlega erfiður eins og allir vita en sumarið hefur bara gengið vel þrátt fyrir að hafi komið upp einhverjir hnökrar. Auðvitað eru skip flöskuháls, það gefur auga leið. Það eru ákveðin pláss en það gengur bara vel og það mun ganga mjög vel um helgina að ferja fólk til og frá Eyjum. Það er von á mörgum og ég held bara að fólk sé mjög spennt fyrir því að geta komið og heimsótt okkur þessa helgi,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjars