Þungunarrof fram að lokum tólftu viku meðgöngu varð heimilt í Færeyjum í upphafi mánaðar þegar ný lög tóku gildi. Færeyska lögþingið samþykkti lagabreytinguna í desember.Það mátti ekki tæpara standa en hún var samþykkt með eins atkvæðis mun. Sautján þingmenn voru fylgjandi en sextán andvígir.Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn mega neita að taka þátt í þungunarrofi ef það samræmist ekki trúarlegum eða siðferðislegum skoðunum þeirra. Þá á að vísa fólki til annars læknis og þetta á ekki að koma í veg fyrir að þungunarrof sé framkvæmt. ÞUNGUNARROF ÁÐUR LEYFT Í UNDANTEKNINGARTILFELLUM Málið kom ítrekað fyrir þingið á síðustu árum en fyrri lög um þungunarrof voru sett 1956.Samkvæmt þeim mátti aðeins rjúfa þungun í undantekningartilfellum – ef líf eða heilsa konu var í alvarlegri hættu, hún