Freyr Alexandersson var í liðnum mánuði ráðinn þjálfari hjá Rosenborg, sigursælasta félagi Noregs. Rosenborg er næstneðst í norsku úrvalsdeildinni með aðeins níu stig eftir ellefu leiki og það er verk að vinna fyrir Frey. „Þetta er staða sem enginn vill vera í en hún er staðreynd. Það eru miklir möguleikar hjá þessu félag og ég lít á þetta sem frábært verkefni, áskorun um að gera eitthvað sérstak," sagði Freyr í sínu fyrsta viðtali eftir ráðninguna.