Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný

Vesturbæjarlaug var opnuð á ný kl. 15.00 í dag, föstudaginn 3. júlí. Við opnun var hiti sundlaugarinnar um tólf gráður en byrjað var að láta renna í hana síðdegis í gær. Það má því velta fyrir sér hvort laugin muni fyrst og fremst draga að sjósundsfólk í dag en búist er við að laugin muni hafa náð fullum hita á morgun.
Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd