Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að ef það eigi að vera markmið að fækka komum heimilislausra á bráðamóttöku spítalans þurfi að vera til aðrar leiðir fyrir hópinn til að sækja þjónustu sem sé þeim greið. Hann segir alla eiga að geta leitað á bráðamóttökuna og starfsfólk vilji þjónusta fólk vel og hratt.