Bandero ekki komist nálægt hvalveiðiskipunum

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, enn ekki hafa komist í grennd við hvalveiðiskipin tvö.Samtökin héldu því fram í færslu á samfélagsmiðlum í gær að Bandero væri nú á leiðinni á hvalamið.„Við höldum áfram að vakta skipið en það hefur ekki verið í grennd við eða ógnað hvalveiðiskipunum,“ segir Ásgeir.Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða í gær eftir að hafa legið við bryggju í nokkra daga vegna slæms veðurs.Bandero er vestan við landið fyrir utan landhelgina.Skipverjar um borð í Bandero vilja stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur.RÚV / Vefsíða Captain Paul Watson Foundation
Bandero ekki komist nálægt hvalveiðiskipunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd