Sveigja reglurnar fyrir Serenu: Nær hún að spila?

Serena Williams átti endurkomu á tennisvöllinn í vikunni þegar hún mætti tvítugu Mayu Joint á Wimbledon mótinu. Þar vann Joint 2-1 sigur og Serena Williams sneri sig á hné í leiknum. Það gæti sett keppni hennar og Venus Williams í tvímenningi í uppnám.Fyrsta umferð í tvíliðaleik er spiluð á fimmtudegi og föstudegi í fyrstu viku mótsins en nú hafa skipuleggjendur mótsins gefið það út að vilji sé fyrir því að systurnar fái að spila sinn leik á laugardag. Þannig sé stórstjörnunni Serenu gefinn eins langur tími og hægt er til að ná sér af meiðslunum.„Við gefum henni eins mikinn tíma og mögulegt er. Auðvitað viljum við að hún spili, ef hún mögulega getur. Stundum koma upp óvenjulegar aðstæður, hvort sem það er veður, meiðsli eða stundum árekstrar milli leikmanna sem spila í tveimur af þremur .“
Sveigja reglurnar fyrir Serenu: Nær hún að spila?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd