Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um Súdan í mannréttindaráði SÞ

Ísland var meðal ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.Á fundinum var einblínt á héraðið Norður-Kordofan, þar sem staða mannúðarmála versnar dag frá degi sökum vaxandi ofbeldis, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.Þar segir að minnst 880 hafi fallið í drónaárásum á fyrstu fjórum mánuðum ársins og hundruð þúsunda séu innlyksa í borginni El Obeid. Þar óttast menn yfirvofandi fæðuóöryggi og voðaverk.Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að aðgengi mannúðaraðstoðar verði tryggt og vernd borgara og innviða sett í forgang.
Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um Súdan í mannréttindaráði SÞ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd