Borgarstjóri segir engum verkefnum upplýsingafulltrúa hafa verið útvistað eftir uppsagnir í síðustu viku. Hún hafi notið liðsinnis annars eigenda ráðgjafarskrifstofunnar Athygli, sem er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, við skrif fréttatilkynningu.Engir upplýsingafulltrúar hafi verið ráðnir aftur en samið hafi verið við tvo starfsmenn um að vinna fram að áramótum á meðan unnið sé að nýju fyrirkomulagi.Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði lögðu fram fyrirspurn á fundi borgarráðs í gær og óskuðu eftir svörum um hvernig upplýsingamálum hafi verið og verði háttað í kjölfar uppsagna á skrifstofu samskipta og viðburða í síðustu viku. EKKERT SEM GREITT VAR FYRIR Samskiptastjóra og öllum sex upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir samskipt