Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við stofnun lóðarinnar Hvítasands innan jarðarinnar Þórustaða í Önundarfirði, þar sem félag á vegum athafnafólksins Runólfs Ágústssonar og Áslaugar Guðrúnardóttur hyggst reisa glæsileg baðlón. Lóðin er í Önundarfirði og er deilan um landamerki á svæðinu ríflega aldargömul. Dómkvaddur matsmaður hefur verið fenginn til þess að úrskurða um þessa deilu sem má rekja til ársins 1909. „Vonandi...