Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður víetnamska athafnamannsins Quang Lé, fullyrðir að ekkert sé að gerast í rannsókn lögreglu á ætluðum brotum skjólstæðings hans. Quang Lé hefur sætt farbanni síðan sumarið 2024 vegna gruns um mansal, skjalafals og peningaþvætti. Í nýjum farbannsúrskurði Landsréttar yfir athafnamanninum segir að brotaþolar í málinu séu 29 talsins.