Til stendur að rífa skyggni og setusvæði stúkunnar í Laugardalnum fyrst og mögulegt er að mannvirkið víki að fullu á einhverjum tímapunkti. Heitir pottar og svæði við áhorfendastúku í Laugardalslaug verða lokuð í að minnsta kosti í hálft ár.Hætta er talin geta stafað af stúkunni, segir í nýju áhættumati Verkís sem kynnt var í gær.Mesta og bráðasta hættan, að mati Verkís, er að steypubrot gætu fallið á gesti eða starfsfólk og mögulegt burðarþolshrun. Sérstaklega ef súlur eða hnútpunktar gefa sig undan eigin þunga eða ytra álagi á borð við snjó, vind eða jarðskjálfta.Hvatt er til tafarlausra aðgerða, þar á meðal niðurrifs þar sem stúkan er verst farin. Ekki er talið að stúkan eins og hún leggur sig sé að hruni komin en afleiðingar hruns gætu verið lífshættulegar og valdið fjöldaslysi, segir