Áhrifavaldurinn Joshua Kravchenko hefur greint frá því að hann hafi setið í fangaklefa í fimm klukkustundir eftir að hafa reynt að komast inn á völlinn í leik Belgíu og Senegal á heimsmeistaramótinu. Kravchenko er dvergur.Atvikið átti sér stað á Lumen Field í Seattle þegar Kravchenko og þrír vinir hans stukku yfir girðingar og stöðvuðu leikinn um stund. Vinir hans komust inn á völlinn en Kravchenko var gripinn af öryggisvörðum áður en hann náði yfir hliðarlínuna.