Rúta hefur setið föst í aur á Kjalvegi frá í gær. Hálendisvegir eru margir blautir eftir vætutíð síðustu daga.Vegagerðin hefur bannað allan akstur yfir Kjöl frá Hveravöllum og að Kerlingarfjallavegi. Þar situr hópferðabíll fastur með framendann ofan í forarpytti og hefur ekki haggast síðan síðdegis í gær.Það tókst ekki að draga rútuna burt með hálendisjeppum og öðrum stærri bílum í gær en Vegagerðin hefur nú komið stórvirkum vinnuvélum á staðinn. Þeir benda fólki sem ætlar þar um að fylgjast með upplýsingum á umferðin.is, sem verði uppfærðar um leið og leiðin verður opnuð. ENN MJÖG BLAUTT YFIR HÁLENDIÐ AUSTAN TIL Vegurinn utan þessa stutta kafla í ágætis standi, að sögn Vegagerðarinnar, þannig að allt kapp verður lagt á að draga rútuna burt og laga veginn, svo hægt verið að hleypa umfer