Sviss vann Alsír 2-0 í 32-liða úrslitum HM í nótt. Það var síðasti landsleikur Riyad Mahrez, fyrirliða alsírska liðsins. Mahrez er 35 ára og tilkynnti eftir leik að landsliðsskórnir væru farnir á hilluna, eftir tólf ára landsliðsferil og 40 mörk í 120 leikjum.