Það fór fram ótrúlegur leikur í Bestu deildinni í gær þegar Þór tók á móti KR og gerði 3-3 jafntefli. Þór komst yfir eftir kjánaleg mistök í vörn KR, tvöfaldaði forystuna með marki beint úr horni og markvörður liðsins skoraði svo þriðja markið með langskoti! En KR-ingar náðu að svara þrívegis og taka stig úr þessum svakalega leik.