Klopp lýsir yfir vilja til að taka við Þýskalandi

Það stefnir allt í að Jurgen Klopp verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands. Þýska fótboltasambandið hefur staðfest að það hyggist fara í viðræður við Klopp eftir að Julian Nagelsmann sagði upp störfum. Í yfirlýsingu frá sambandinu segir að Klopp hafi þegar lýst yfir vilja til að verða næsti landsliðsþjálfari Þýskalands. Klopp er 59 ára og er fyrrum stjóri Mainz og Borussia Dortmund en er þekktastur fyrir stjóratíð sína hjá Liverpool þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina 2020.
Klopp lýsir yfir vilja til að taka við Þýskalandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd