Julian Nagelsmann hefur sagt starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Þýskalands, eftir vonbrigðin á HM. Paragvæ sló Þýskaland út eftir vítakeppni í 32-liða úrslitum. Í gær var greint frá því að Nagelsmann hefði farið á fund með stjórn þýska fótboltasambandsins þar sem honum hafi verið boðið að segja upp, ef hann gerði það ekki yrði hann rekinn.