Eftir mikla úrkomu og lægðagang norðvestanlands í febrúar og mars urðu miklar leysingar á hálendinu í lok apríl sem orsakaði stærsta flóð í Blöndu frá því að mælingar hófust.Um 626 rúmmetrar vatns á sekúndu streymdu inn í Blöndulón 28. apríl en það er um fimmtánfalt rennsli Blöndu við Blönduós á venjulegum degi.Þetta er stærsti innrennslistoppur sem sést hefur í Blöndu frá því mælingar hófust - eða um tvöfalt stærri en gögn eru til um. Yfirborð Blöndulóns hækkaði um 2,7 metra á aðeins tveimur sólahringum.Sökum hægviðris framan af vetri var vatnshæð í Blöndulóni töluvert undir meðallagi þegar að flóðið átti sér stað og varð því þess ekki vart í byggð. Þá segir í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun að búast megi við því að lónið fari ekki á yfirfall í sumar nema það verði sérstaklega mikil úr