Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu í tengslum við gjaldskyld bílastæði.Komst Neytendastofa að þeirri niðustörðu að félögin Isavia, Green Parking, Kvasis lausnir og Sannir landvættir hefðu brotið gegn lögum sem stofnunin hefur eftirlit með. Þá hafi Green Parking ekki farið eftir fyrri ákvörðun Neytendastofu.