Alexandra Jóhannesdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Hún hefur gegnt starfi sveitar- og hafnarstjóra á Skagaströnd undanfarin átta ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Suðurnesjabæ.Gert er ráð fyrir að ráðningin verði staðfest á fundi 15. júlí. Alls bárust 26 umsóknir um starfið en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.Áður starfaði Alexandra sem lögfræðingur hjá Listahátíð í Reykjavík og Fiskistofu. Hún er með B.A.-gráðu og Mag.jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.Nýi bæjarstjórinn hefur einnig sinnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum, meðal annars sem framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu, formaður Almannavarnarnefndar Austur-Húnavatnssýslu, varaformaður Samgönguráðs og varaformaður Hafnasambands Íslands.„Það eru mikil