Um 1.350 einstaklingar sækja endurhæfingu í Hveragerði árlega og með nýjum samningi er reksturinn tryggður til ársloka 2029. Gunnlaugur K. Jónsson forseti Náttúrulækningafélagsins, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Þórir Haraldsson, forstjóri Heilsustofnunar, og Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, undirrituðu samninginn í matstofu Jónsar á Heilsustofnun í gær.Alma er mjög ánægð með nýja samninginn.„Þetta er samningur þar sem við erum að bæta í um 230 milljónum í þá mikilvægu starfsemi sem hér fyrir fólk sem er með geð- og taugasjúkdóma, hjartasjúkdóma, stoðkerfisvanda, offitu og krabbamein svo dæmi séu nefnd,” segir Alma.„Þannig að þetta er gríðarlega mikilvæg starfsemi og auðvitað er Heilsustofnun og Náttúrulækningafélagið löngu búin að sanna gildi sitt í forvörnum og endur