Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki sem sinna gjaldheimtu fyrir bílastæði. Fyrirtækin eru staðsett víðs vegar um landið.Þetta kemur fram í ákvörðun Neytendastofu. Gerð var úttekt á upplýsingagjöf og viðskiptaháttum fjögurra fyrirtækja: Sannra landvætta, sem sjá um rekstur þriggja bílastæða á landsbyggðinni, Kvasis lausna, sem reka 10 bílastæði víða um land, bílastæðin í bílakjallaranum Hamraborg og Landspítalanum á Hringbraut í umsjá Green parking, og bílastæða Isavia innanlandsflugvalla, á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli.Í úrskurði Neytendastofu kemur fram að fyrirtækið Sannir landvættir hafi með starfsháttum sínum viljandi villt fyrir um viðskiptavinum, vangreiðslugjald ekki birt með áberandi og auðsjáanlegum hættu á upplýsingaskiltum bílastæðanna. Þeim var gert að grei