Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir umræðuskjal Samkeppnisstofnunar um að olíufélögin hafi aukið álagningu sína um 25 og 50 prósent á síðustu árum ekki koma sér á óvart.„Þetta er ekki ný saga. Við þekkjum það að fyrir 30 árum voru þessir frægu Öskjuhlíðarfundir. Nú þurfa menn ekki Öskjuhlíðar til að koma sér saman um eitthvað. Þetta er klassískur fákeppnismarkaður. Það er með ólíkindum hvað þessi fyrirtæki hafa verið stórtæk í því að vera með alltof háa álagningu.“Runólfur segir að álagning sé sú mesta sem sjáist í viðmiðunarlöndum þó að búið sé að taka tillit til fjarlægðar og smæðar markaðar. Hann segir metafkomu Haga á síðasta ári og í byrjun þessa skýrast að hluta af óvæntum auka hagnaði af sölu eldsneytis.Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Samt