Erfið og flókin verkefni framundan fyrir Íra í formennsku ráðherraráðs Evrópusambandsins

Micheál Martin forsætisráðherra Írlands sló tóninn fyrir formennskutíð Íra í ávarpi sem birtist á heimasíðu formennskuembættisins fyrir nokkrum dögum; Írum væri heiður að því að taka við þessu hlutverki en „við gerum það á krítískum tímapunkti fyrir Evrópusambandið, þegar óvissa og ófyrirsjáanleiki er að aukast í heiminum,“ sagði hann.Írar tóku við formennskunni í ráðherraráði ESB af Kýpur í fyrradag og gegna embættinu nú í áttunda skiptið síðan Írland varð hluti af Evrópusambandinu árið 1973. Aðildaríki Evrópusambandsins skiptast á um að gegna þessu hlutverki; á undan Kýpur var Danmörk með formennskuna og Litáar taka svo við af Írum um næstu áramót.Stór og mikilvæg verkefni bíða Íra næstu sex mánuðina, þar á meðal samningaviðræður aðildarríkjanna um næstu sjö ára fjárlög Evrópusambandsins
Erfið og flókin verkefni framundan fyrir Íra í formennsku ráðherraráðs Evrópusambandsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd