Hagrannsóknir hafa verið stundaðar frá því löngu fyrir fæðingu frelsara vors. Þannig greinir frá í fyrstu Mósesbók að það voru hagsveiflur: „Það sem faraó dreymdi er einn og sami draumurinn. Guð hefur birt faraó hvað hann hefur í hyggju. Sjö vænu kýrnar merkja sjö ár og sjö vænu öxin merkja einnig sjö ár. Þetta er einn og sami draumur. Sjö mögru og ljótu kýrnar, sem komu á eftir hinum, merkja sjö ár og sjö tómu öxin, sem skrælnuð voru af austanvindi, merkja sjö ára hungursneyð. Eins og ég hef þegar sagt faraó þá hefur Guð birt honum hvað hann hefur í hyggju. Sjö allsnægtaár koma um allt Egyptaland.“