Hvalveiðar hafa verið mikið í umræðunni í vikunni, sérstaklega eftir að hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval vertíðarinnar á land og þjóðsöngurinn var spilaður í hátalarakerfi á höfninni. Þetta hefur vakið hörð viðbrögð, en Paul Watson-samtökin hafa boðað atlögu að olíufélaginu sem þjónustar Hval hf. og varðskipið Þór hefur fylgt skipi samtakanna, Bandero, eftir. Þá vakti athygli myndband af starfsmanni Hvals hf. að leika sér að limi hvalhræs, en slíkt uppátæki virðist ekki vera einsdæmi.