Staðfesta hnífstunguárás við Vikivaka

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á stöð 1 sem sinnir meðal annars miðbænum barst í gærkvöldi tilkynning um blóðugan aðila sem hafði orðið fyrir líkamsárás. Kom í ljós að viðkomandi hafði verið stunginn með hníf. Ekki er greint frá því í dagbók lögreglunnar um verkefni síðustu næturvaktar hvar árásin átti sér stað, en gera má ráð fyrir að um sé að ræða atvikið við Vikivaka á horni Grettisgötu og Barónsstíg sem DV greindi frá í gærkvöldi.
Staðfesta hnífstunguárás við Vikivaka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd