Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social í gærkvöld að bandalagið hefði ekki verið til staðar fyrir Bandaríkin. Með færslunni birti hann stöplarit sem sýnir framlög Bandaríkjanna til NATO samanborið við framlög Bretlands, Frakklands, Ítalíu og Póllands.Trump hefur margoft gagnrýnt evrópska bandamenn undanfarið vegna viðbragða þeirra við stríði Bandaríkjanna við Íran. Hann gagnrýndi sumar Evrópuþjóðir fyrir að neita Bandaríkjaher um að nota herstöðvar og einnig að hafna því að senda sjóheri til Hormússunds. Trump vill að Evrópa taki forystu í að efla eigin varnir og segir Washington hafa ákveðið að draga úr skuldbindingum sínum.Trump fundaði nýverið með Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO í Washington. Hann sagðist vita af einstaka atriðum sem Trump væri virkilega óánægður með. Hann áré