Maður var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi grunaður um hnífstunguárás. Lögreglu var tilkynnt um blóðugan mann sem hafði orðið fyrir líkamsárás. Í ljós kom að hann hafði verið stunginn með hníf. Í dagbók lögreglu segir að tilkynningunni hafi fylgt greinargóð lýsing á árásarmanninum, og lögregla hafði hendur í hári hans skömmu síðar.Árásarmaðurinn var vistaður í fangaklefa og málið er til rannsóknar. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.Lögregla sinnti einnig, meðal annars, útkalli vegna gruns um mann með stolið reiðhjól. Maðurinn hélt á reiðhjólinu með lásinn fastan við hjólið. Hann var færður á lögreglustöð til viðræðna og hjólinu komið aftur í réttar hendur.